Telja áttunda barnið vera á leiðinni

Nick Cannon á mörg börn.
Nick Cannon á mörg börn. AFP

Svo virðist sem bandaríski leikarinn Nick Cannon eigi von á sínu áttunda barni. Erlendir slúðurmiðlar greina frá því að Cannon hafi haldið utan um óléttukúlu Bre Tiesi í kynjaveislu á laugardaginn. 

Tiesi skildi við NFL-leikmanninn Johnny Manziel í nóvember í fyrra. Cannon og Tiesi héldust í hendur og létu vel hvort að öðru í hvítum fötum á meðan gestir sprengdu blátt konfettí. Nick hélt utan um maga Tiesi og brosti að því er fram kemur á vef Page Six. 

Cannon komst í fréttir í fyrra fyrir að eignast fjögur börn með þremur konum á aðeins nokkrum mánuðum. Cannon á tíu ára tvíbura með Mariuh Carey. Hann á soninn Golden sem er fjögurra ára, hina eins árs gömlu dóttur Powerful með Brittany Bell. Í júní eignaðist hann tvíburana Zion og Zillion. Í sumar eignaðist hann einnig soninn Zen sem er sjöunda barn hans en í desember greindi hann frá því að Zen hefði fallið frá. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda