Sigurður Ingi orðinn sjöfaldur afi

Sigurður Ingi Jóhannsson er orðinn sjöfaldur afi.
Sigurður Ingi Jóhannsson er orðinn sjöfaldur afi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigurður Ingi Jóhannsson eignaðist sitt sjöunda barnabarn á dögunum. Í heiminn kom lítil stúlka en foreldrar hennar eru Jóhann Halldór Sigurðsson, sonur Sigurðar Inga, og Lilja Björk Guðmundsdóttir.

Sigurður Ingi og eiginkona hans Elsa Ingjaldsdóttir hafa svo sannarlega verið heppin í gegnum árin. Nanna Rún, elsta dóttir Sigurðar, á þrjá syni, og Bergþór sonur hans á tvo syni. Sölvi Már, sonur Elsu, á eina dóttur og Hildur dóttir Elsu eignaðist son á síðasta ári. 

Það er því mikið líf og fjör í sveitinni hjá ömmu og afa um þessar mundir og verður fjörið sennilega enn meira á næstu árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda