Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner eignaðist sitt annað barn á dögunum með kærasta sínum, rapparanum Travis Scott.
Jenner birti færslu á Instagram um liðna helgi þar sem hún tilkynnti um komu barnsins og notaðist við lyndistákn sem sýndi blátt hjarta. Heimildir fréttamiðilsins Page Six herma að þeim hafi fæðst lítill drengur hinn 2. febrúar síðastliðinn. Það er því mikið um töluna tvo að ræða og afmælisdagurinn frekar flottur; 2.2.22.
Kylie Jenner og Travis Scott eiga fyrir dótturina Stormi Webster sem er nýorðin fjögurra ára gömul, aðeins degi á undan litla systkininu, en Stormi fæddist 1. febrúar 2018. Mun hún að öllum líkindum vera flott í nýju hlutverki sem stóra systir.
Hér má sjá Instagram-færslu Jenners.