Kanadíski tónlistarmaðurinn Michael Bublé á von á barni með eiginkonu sinni, argentínsku leikkonunni Luisana Lopilato. Hjónin eiga fyrir þrjú börn en elsta barnið kom í heiminn árið 2013.
Lopilato skartaði myndarlegri óléttukúlu á mynd sem birtist á vef TMZ. Myndin er úr nýju tónlistarmyndbandi sem kanadíski sjarmörinn er að gefa út. Lagið heitir I'll Never Not Love You og kemur úr á næstunni.
Hinn 46 ára gamli Bublé og 34 ára gamla Lopilato eiga Noah sem er átta ára, Elias sem er sex ára og dótturina Vidu sem er þriggja ára. Elsti sonur þeirra greindist með krabbamein árið 2016 en hefur náð sér að fullu.
Hjónin kynntust árið 2009 og gengu í hjónaband árið 2011. Bublé samdi lagið Haven't Met You Yet þegar þau voru nýbyrjuð saman og kom hún fram í myndbandinu. Nú eru þau búin að eignast þrjú börn saman og er það fjórða á leiðinni og aftur leika þau saman í tónlistarmyndbandi Bublé.