Heitir ekki Úlfur lengur

Kylie Jenner.
Kylie Jenner. AFP

Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner uppljóstraði því á dögunum að henni og kærasta hennar, rapparinn Travis Scott, hafi snúist hugur með nafngiftina á syni sínum. Líkt og áður hefur komið fram hafði sonur þeirra, sem kom í heiminn í síðasta mánuði, fengið nafnið Wolf. Það heitir hann víst ekki lengur.

Jenner sagði aðdáendum sínum á Instagram frá nafnabreytingunni og viðurkenndi að  foreldrunum hafi ekki fundist nafnið Wolf passa við drenginn og því ákváðu þau að skipta um nafn. Jenner lét nýja nafn drengsins ekki í ljós með tilkynningunni. 

Skilaboðin sem Jenner setti í sögu á Instagram og greindi …
Skilaboðin sem Jenner setti í sögu á Instagram og greindi frá nafnabreytingunni. Skjáskot/Instagram

„Sonur okkar heitir ekki lengur Wolf. Okkur fannst það ekki vera hann. Vildi bara deila þessu með ykkur því ég sé nafnið Wolf alls staðar,“ skrifaði Jenner í sögu á Instagram, fréttamiðillinn Daily Mail greindi frá.

Nokkrum klukkustundum áður en tilkynning um nafnabreytinguna barst hafði Jenner birt fallegt myndskeið á YouTube-reikningi sínum sem hún tileinkaði syni sínum sem enginn veit nú hvað heitir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál