Yngsti sonur tónlistarmannsins Jóns Jónssonar, og eiginkonu hans, Hafdísar Björk Jónsdóttur tannlæknis, hefur hlotið nafnið Friðrik Nói Jónsson.
Friðrik Nói fæddist 3. maí en fyrir eiga þau hjónin soninn Jón Tryggva og dæturnar Mjöll og Sigríði Sól.
Jón birti mynd af börnunum á Instagram og sagði að eldri systkinin væru afskaplega ánægð með litla bróður.