Eiginkona rapparans Ice-T, Coco Austin hefur enn á ný valdið miklum usla í netheimum. Í fríi þeirra á Bahamaeyjum á dögunum fór fjölskyldan í vatnsrennibrautargarð. Var Austin klædd í g-stregnssundbuxur og dóttir hennar Chanel var í sundfötum með sama mynstri.
Austin birti myndir af sér og dóttur sinni þar sem þær léku sér í sundlaug. Ummæli við myndirnar eru á þann vegu að fólk efast um hæfni hennar sem móður. Virðist fólk hafa nóg að segja um þessa fjölskyldu og mikið hefur verið sett út á þau síðan þau eignuðust dótturina Chanel.
„Hún er engin smá fyrirmynd, hvernig barn vill hún eiga,“ skrifaði einn. „Þetta er orðið aðeins of mikið Coco, þú ert í kringum börn,“ skrifaði annar.
„Allir pabbarnir í vatnsrennibrautagarðinum eru í vondum málum, þeir voru of uppteknir að horfa á þig og gleymdu líklega að hugsa um börnin sín,“ skrifaði enn annar.