Leikkonan Sophie Turner og söngvarinn Joe Jonas hafa eignast annað barn sitt. Þau eignuðust stúlku en fyrir eiga þau eina dóttur.
Stúlkan litla kom í heiminn í Miami í Flórídaríki í Bandaríkjunum fyrr í mánuðnum og eru þau hjónin komin með dóttur sína heim af spítalanum.
Sjörnuhjónin gengu í það heilaga í Las Vegas vorið 2019 og héldu svo stórt brúðkaup í Frakklandi seinna sama ár.
Ári síðar, eða í júlí 2020, urðu þau foreldrar í fyrsta sinn þegar dóttirin Willa kom í heiminn.