Róbert og Hólmfríður eiga von á barni

Róbert Aron Magnússon og Hólmfríður Rebekka eiga von á barni …
Róbert Aron Magnússon og Hólmfríður Rebekka eiga von á barni í febrúar. Samsett mynd

Veitingamaðurinn Róbert Aron Magnússon, betur þekktur sem Robbi Kronik, og Hólmfríður Rebekka Víkingsdóttir eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið greindi frá þessu á Instagram. 

Róbert hefur á síðustu árum getið sér gott orð fyrir að skipuleggja götubitamarkað, en einhverjir kannast helst við hann úr útvarpsþættinum Kronik sem hann hélt úti í tuttugu ár. 

„Eftir oft ótrúlega erfiða tíma og nokkrum glasafrjógvunum seinna þá getum loksins loksins tilkynnt að við eigum von á barni í febrúar,“ skrifa þau í færsluna á Instagram.

Tuttugu ár skilja þau Róbert og Hólmfríði að en þau hafa verið saman í fimm ár. Fyrir á Róbert einn son. 

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda