Raunveruleikastjarnan og snyrtivörumógúllinn Kylie Jenner opnar sig um fæðingarþunglyndi í nýrri stiklu fyrir þættina The Kardashians. Jenner eignaðist sitt annað barn í febrúar á þessu ári, en fyrir á hún eina dóttur.
„Ég var að eignast nýtt barn og ég veit að ég ætti að vera hamingjusöm, en ég er búin að gráta stanslaust í þrjár vikur,“ sagði Jenner í stiklunni.
Jenner hefur áður tjáð sig um að fæðingin hafi verið erfið. Hún deildi myndbandi á Instagram í mars þar sem hún sagði að síðustu vikur hefðu verið erfiðar. Hún sagði að hún hefði átt erfitt bæði líkamlega og andlega.
„Fyrir aðrar mömmur sem eru að ganga í gengum það sama þá hefur þetta heldur ekki verið auðvelt fyrir mig. Ég þarf bara alltaf að minna mig á að ég bjó til heila mannveru, heilbrigðan og fallegan dreng. Við þurfum að hætta að setja svona mikla pressu á okkur,“ sagði Jenner.