Eiga von á sínu þriðja barni

Söngvarinn Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo.
Söngvarinn Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo. AFP

Söngvarinn Adam Levine og fyrirsætan Behati Prinsloo eiga von á sínu þriðja barni  samkvæmt heimildum People

Levine hefur gert það gott í tónlistarheiminum sem söngvari hljómsveitarinnar Maroon 5, en Prinsloo skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún sat fyrir hjá nærfatarisanum Victoria's Secret. 

Levine og Prinsloo kynntust fyrir tíu árum, árið 2012 og giftu sig tveimur árum síðar. Fyrir eiga hjónin tvær dætur, þær Gio Grace og Dusty Rose. Á mánudaginn stigu hjónin út og snæddu hádegismat í Santa Barbara, Bandaríkjunum þar sem Prinsloo sást skarta fallegri óléttukúlu. 

Í samtali við Entertainment Tonight í nóvember talaði Prinsloo um möguleikann á að stækka fjölskylduna. „Við vissum alltaf að okkur langaði í annað,“ sagði fyrirsætan. „Veistu hvað, aldrei segja aldrei. Við viljum stóra fjölskyldu, hver veit,“ bætti hún við. 

Adam Levine ásamt fjölskyldu sinni.
Adam Levine ásamt fjölskyldu sinni. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál