Var með nælu frá langömmu

Karlotta prinsessa og bróðir hennar Georg prins.
Karlotta prinsessa og bróðir hennar Georg prins. AFP

Karlotta prinsessa var með nælu sem hún fékk að gjöf frá langömmu sinni, Elísabetu II. Bretadrottningu, í útför hinnar síðar nefndu á mánudag. Karlotta litla, sem er sjö ára, er sögð hafa erft áhuga langömmu sinnar á hestum, en nælan er einmitt í laginu eins og skeifa. 

Prinsessan og bróðir hennar, Georg prins, gengu á eftir kistu drottningarinnar inn í kirkjuna og út úr henni í Westminster Abbey. Þóttu systkinin hafa staðið sig einstaklega vel í bæði útförinni í Lundúnum og í Windsor-kastala síðdegis.

Karlotta er dóttir Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, en Vilhjálmur er elsti sonur Karls III. Bretakonungs.

Karlotta prinsessa.
Karlotta prinsessa. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda