Grínistinn Nick Cannon og Brittany Bell eignuðust son hinn 30. september síðastliðinn, en drengurinn er þriðja barn þeirra saman og tíunda barn Cannons. Sonurinn kom í heiminn nokkrum dögum á eftir níunda barni Cannons, en hann eignaðist dóttur með fyrirsætunni LaNisha Cole hinn 15. september.
Cannon á nú tíu börn með sex konum og virðist alsæll með fjölskyldu sína sem fer sífellt stækkandi.
Litli drengurinn hefur þegar fengið nafnið Rise Messiah Cannon, en fyrir eiga Cannon og Bell fimm ára son og eins árs dóttur. Cannon birti langa færslu á Instagram-reikningi sínum þar sem hann tilkynnti gleðifregnirnar og lýsti erfiðri fæðingu sonar síns.
„Þetta var líklega erfiðasta fæðing sem ég hef orðið vitni að. 48 klukkustundir af ömurlegum sársauka og lífshættu til að taka á móti tíu pundum af ást og gleði sem heitir Rise Messiah Cannon,“ skrifaði Cannon og þakkaði Bell fyrir að vera klett sinn í gegnum þetta allt. „Hún hefur kennt mér svo margt um uppeldi, sálfræði, andlega heilsu, ást og bara lífið almennt,“ bætti hann við.
Cannon virðist hvergi nær hættur að stækka fjölskyldu sína, en hann á von á sínu ellefta barni með Abby De La Rosa. Samkvæmt heimildum Sun er von á barninu í árslok. Fyrir eiga þau eins árs gamla tvíbura.