Íslandsvinkonan og Love Island-stjarnan Molly Mae fagnar líkamsbreytingunum sem fylgja meðgöngunni, en hún á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tommy Fury.
Mae og Fury kynntust í raunveruleikaþáttunum Love Island, en þau höfnuðu í öðru sæti í fimmtu þáttaröð og hefur ást þeirra blómstrað síðan þá. Nýlega skelltu þau sér í svokallað „babymoon“, sem mætti þýða sem „bumbuferð“ eða „bumbuhvíld“, í Dúbaí.
Mae var dugleg að deila myndum frá ferðinni á samfélagsmiðlum sínum, en þar deildi hún persónulegri færslu þar sem hún talaði um líkamsbreytingarnar sem fylgja meðgöngunni.
„Reyndi að fagna nýja líkamanum í þessari ferð en ég er svo spennt að fara heim í íþróttaföt,“ skrifaði hún við myndaröðina, en á þriðju myndinni má sjá Mae í sömu sundfötum þegar hún var komin þrjár vikur á leið, en hafði ekki hugmynd um það.