Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og unnusta hans Sonja Anaís Ríkharðsdóttir Assier eiga von á sínu öðru barni saman.
Andri Steinn greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum í gær en fjölskyldan var stödd í Boston í Bandaríkjunum yfir þakkargjörðarhátíðina.
„Við erum þakklát fyrir stækkandi fjölskyldu, en önnur Andradóttir mætir í maí 2023,“ skrifar Andri á Facebook. Fyrir eiga þau Sonja dótturina Ármeyju Iðunni.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!