Hraðfréttamaðurinn Benedikt Valsson og unnusta hans, Heiða Björk Ingimarsdóttir dansari og móttökuritari á Kírópraktorstöðinni, eignuðust stúlku hinn 13. janúar síðastliðinn.
Benedikt greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í gær.
Fyrir eiga þau Benedikt og Heiða soninn Elmar Inga sem er að verða þriggja ára. Benedikt hóf feril sinn í Hraðfréttum sem hófu göngu sína á mbl.is á sínum tíma en þættinum stjórnaði hann ásamt Fannari Sveinssyni. Síðar færðist þátturinn yfir á Rúv.
Barnavefurinn óskar þeim til hamingju!