Íslandsvinkonan og Love Island-stjarnan Molly-Mae Hauge eignaðist sitt fyrsta barn með kærasta sínum, Tommy Fury, fyrir viku síðan.
Tíðindunum deildi hún með fylgjendum sínum á Instagram.
Mae tók þátt í fimmtu þáttaröð raunveruleikaþáttanna vinsælu og hafnaði í öðru sæti ásamt kærasta sínum, Tommy Fury. Parið er enn saman í dag og hefur notið mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum.