Stal senunni í hálfleik

Rihanna kom öllum á óvart í Ofurskálinni.
Rihanna kom öllum á óvart í Ofurskálinni. AFP

Tón­list­ar­kon­an Ri­hanna stal sen­unni í hálfleik Of­ur­skál­ar NFL-deild­ar­inn­ar í Banda­ríkj­un­um í nótt þegar hún steig á svið ólétt að sínu öðru barni. Níu mánuðir eru síðan Ri­hanna og kær­asti henn­ar, tón­list­armaður­inn A$AP Rocky, eignuðust sitt fyrsta barn. 

Það er óhætt að segja að sam­fé­lags­miðlar hafi farið á hliðina þegar Ri­hanna kom fyrst á sviðið, því strax fóru aðdá­end­ur að spyrja hvort hún væri ólétt. Umboðsmaður Ri­hönnu staðfesti það svo við fjöl­miðla. 

Rihanna og A$AP Rocky eiga von á sínu öðru barni.
Ri­hanna og A$AP Rocky eiga von á sínu öðru barni. AFP

Ri­hanna hafði þó gefið til kynna í viðtali vik­unni fyr­ir að það myndi eitt­hvað óvænt ger­ast á sviðinu en aðdá­end­ur virðast ekki hafa verið bún­ir und­ir þessi tíðindi. „Ég er að hugsa um að koma með einn. Ég er ekki viss, við sjá­um til,“ sagði hún í viðtal­inu. 

Aðdá­end­ur klóruðu sér í koll­in­um, myndi hún njóta liðstyrks frá Jay-Z, Dra­ke, eða kannski Em­inem? Eng­inn bjóst alla­vega við því að hún myndi op­in­bera aðra meðgöngu sína. 

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda