Eignuðust tvíbura nóttina fyrir stóra sigurinn

Christina og Nick Allegretti eignuðust tvíburadætur nóttina fyrir Ofurskálarleik NFL-deildarinnar.
Christina og Nick Allegretti eignuðust tvíburadætur nóttina fyrir Ofurskálarleik NFL-deildarinnar. Skjáskot/Instagram

Varnarmaður Kansas City Chiefs Nick Allegretti hvíldist kannski ekki mikið fyrir Ofurskálarleikinn á sunnudag. Nóttina fyrir leikinn fór eiginkona hans Christina af stað og fæddi honum tvíbura.

Klukkan hálf fjögur um nóttina fyrir leikinn var Allegretti vakandi í myndsímtali við eiginkonu sína sem fæddi honum dætur með hálftíma millibili.

„Þetta er besti dagur lífs míns sama hvað. Klukkan 3.30 og 4.00, þá varð ég faðir. Faðir tveggja stúlkna. Það er ótrúlegt. Og núna á ég hring fyrir þær báðar. Ég trúi þessu varla,“ sagði Allegretti í viðtali við Chief’s Digest. Þetta var í annað sinn sem Allegretti vinnur Ofurskál NFL-deildarinnar og því á hann nú tvo sigurhringi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda