Dreymir þig um barnaherbergi í anda Molly-Mae?

Íslandsvinkonan Molly-Mae Hague tók nýverið á móti sínu fyrsta barni …
Íslandsvinkonan Molly-Mae Hague tók nýverið á móti sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tommy Fury. Samsett mynd

Íslandsvinkonan og Love Island-stjarnan, Molly-Mae Hague, tók nýverið á móti sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Tommy Fury. Parið hefur komið sér vel fyrir á glæsilegu 685 milljón króna heimili sínu í Chasire á Bretlandi.

Nýlega gaf Hague fylgjendum sínum innsýn í glæsilegt barnaherbergi dóttur þeirra, Bambi. Margir virtust afar hrifnir af rýminu, en ef þú ert meðal þeirra sem dreymir um barnaherbergi í anda Hague eru nokkur atriði sem ber að hafa í huga. 

Mjúkir tónar og falleg form

Bambi er strax umvafin miklum lúxus, en af myndum að dæma fékk hún rúmgott herbergi með sér baðherbergi og fataherbergi. Parið hefur innréttað herbergið á glæsilegan máta þar sem fallegir litir, áferðir og efni mætast og skapa notalegt og afslappað andrúmsloft. 

Þegar kemur að litavali eru ljósir og hlutlausir tónar áberandi. Í svefnherberginu sjálfu er mjúkur hvítur litur í aðalhlutverki, en þau skapa karakter í rýminu með því að nota ýmiskonar efni og form, til dæmis vegglista og púða. 

Ljósir tónar eru áberandi í herberginu og skapa þar mjúka …
Ljósir tónar eru áberandi í herberginu og skapa þar mjúka og notalega stemningu. Skjáskot/Instagram

Í rýminu er nóg um notalega lýsingu, en úr loftinu hangir skýjaljós sem setur sterkan svip á rýmið auk þess sem parið hefur látið útbúa ljósaskilti með nafni dótturinnar á vegginn. 

Stílhreint og snyrtilegt

Á baðherberginu er sama litapalletta notuð, en þar hafa þau notað marmaraflísar til að gefa rýminu glæsibrag. Þá má sjá frístandandi baðkar með afar fallegum blöndunartækjum á baðherberginu. 

Frístandandi bað og afar falleg blöndunaræki prýða baðherbergið sem er …
Frístandandi bað og afar falleg blöndunaræki prýða baðherbergið sem er afar stílhreint. Skjáskot/Instagram

Fataherbergið er stórkostlegt, en þar má sjá sérsmíðaðan hvítan fataskáp með gylltum fataslám. Fataskápurinn er opinn og því mikið lagt upp úr því að hafa innihaldið stílhreint og snyrtilega upp raðað. Fallegum barnafötum, aðallega í hvítum, bleikum og gráum tónum, hefur verið raðað afar smekklega á slárnar, en fötin hanga á flottum gylltum herðatrjám – allt í stíl. 

Mæðgurnar í fataherberginu þar sem öllu er raðað vel og …
Mæðgurnar í fataherberginu þar sem öllu er raðað vel og vandlega. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda