Rannveig Hildur Guðmundsdóttir og Hallgrímur A. Ingvarsson eignuðust þríbura á skírdag. Fyrir á parið tvö börn.
„Við Hallgrímur getum ekki hætt að brosa og svífum um á bleiku skýji, allt gekk eins og í sögu. Þau liggja núna þrjú saman á vökudeild og hafa það huggulegt í vöggu og þurfa engan auka stuðning. Alveg ótrúlegt hvað þau eru flott og dugleg. Fullkomin viðbót í fjölskylduna okkar,“ skrifar Rannveig á Instagram.
Rannveig hefur einnig deilt fallegu myndbandi af fyrsta sólarhringnum með þríburunum á Instagram.
Barnavefur mbl.is óskar Rannveigu og Hallgrími innilega til hamingju með þríburana!