Raunveruleikastjarnan og athafnakonan, Kylie Jenner, birti myndaseríu á Instagram í tilefni mæðradagsins hinn 14. maí.
Myndirnar sýna hlý og innileg augnablik úr lífi Jenner og barna hennar Stormi Webster og Aire Webster. Börnin á hún með tónlistarmanninum Travis Scott.
Yfir sjö milljónir manna hafa líkað við færsluna en hún er með yfir 390 milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlinum.