Al Pacino faðir í fjórða sinn 83 ára

Al Pacino eignaðist sitt fjórða barn, 83 ára gamall.
Al Pacino eignaðist sitt fjórða barn, 83 ára gamall. AFP/Tolga Akmen

Bandaríski leikarinn Al Pacino er orðinn faðir í fjórða sinn. Pacino er 83 ára að aldri.

Eignaðist hann son með kærustunni sinni Noor Alfallah og hafa þau gefið honum nafnið Roman Pacino. Alfallah er 29 ára og var áður í sambandi með rokkstjörnunni Mick Jagger.

Pacino er vel þekktur fyrir Óskarsverðlaunamyndirnar The Godfather, Scarface og Scent of a Woman.

Fyrir á hann þrjú uppkomin börn úr fyrri samböndum.

Al Pacino er ekki sá eini á eftirlaunum í Hollywood sem enn er að fjölga sér. Robert De Niro, sem er 79 ára, eignaðist sitt sjöunda barn í vor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda