Lúðvík prins setti upp sýningu á svölum Buckingham-hallar um helgina. Prinsinn var spenntur þegar hann fylgdist með flugsýningu breska hersins í kjölfar skrúðgöngunnar Trooping the Colour sem haldin er árlega til að fagna opinberum afmælisdegi þjóðhöfðingja í Bretlandi.
Lúðvík er aðeins fimm ára gamall og hefur ekki enn lært að fela tilfinningar eins og margir í fjölskyldu hans. Hann sást fagna flugeldasýningunni með ótrúlegum handahreyfingum. Systkini hans, Georg og Karlotta, voru við hans hlið á svölunum og virtust aðeins rólegri.
Systkinin voru í hestvagni í skrúðgöngunni og var eitthvað sem lyktaði illa. Að minnsta kosti tók guttinn fyrir nefið á ferðinni.