Glamúrfyrirsætan Coco Austin er ekki þekkt fyrir botnlausa hógværð og lítillæti þegar kemur að samfélagsmiðlum og er oftar en ekki gagnrýnd fyrir myndefnið sem hún birtir þar.
Raunveruleikastjarnan er dugleg að deila myndum af sér og sjö ára gamalli dóttur sinni Chanel Nicole og klæðir hana reglulega í sams konar fatnað, og þá sérstaklega sundfatnað, og hún sjálf.
Mæðgurnar eru í fríi á Flórída og frumsýndu ný neon-bleik mæðgna-bikiní í myndaseríu sem Austin birti á Instagram. Þær vörðu deginum við sundlaugarbakkann á Hard Rock Guitar hótelinu í Hollywood, Flórída.
„Fyrsti dagurinn í fríinu! Takk, elsku @sugardollz fyrir bikinísettin. Þú heldur áfram að hjálpa okkur Chanel að vera í stíl!“ skrifaði Austin við færsluna.