Vill að börnin skilji gildi peninga

Sarah Jessica Parker telur það mikilvægt að börnin greini á …
Sarah Jessica Parker telur það mikilvægt að börnin greini á milli þess sem þau þurfa og þess sem þau vilja. AFP/Kena Betancur

Leikkonan Sarah Jessica Parker vill að börnin sín skilji hvað það þýðir að vinna sér inn peninga. Telur hún það mikilvægt að tala hreint út við börnin sín þegar kemur að því að kenna þeim ábyrgð.

Parker talaði um mikilvægi þess að kenna börnum um gildi peninga í hlaðvarpsþættinum Table for Two, sem bandaríski miðilinn People greinir frá. Segir Parker að hún vilji að börnin sín skilji hvað það þýðir að vinna sér inn peninga, hvað þarf til að vinna sér inn peninga og hvert verðgildi þeirra sé. Parker á þrjú börn með eiginmanni sínum Matthew Broderick.

Parker vitnar meðal annars í hugmyndafræði Dolly Parton um að sjá um þarfir barnanna, en ekki allar óskir þeirra, og segist vera henni hjartanlega sammála. Með því læri börnin að greina á milli þess sem þau þurfa og þess sem þau vilja.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda