Áhrifavaldurinn og markaðsstjórinn Birgitta Líf Björnsdóttir og kærasti hennar Enok Jónsson eiga von á barni. Parið greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Birgitta og Enok hafa notið lífsins í sólinni í sumar og birtu fallega mynd af sér sem tekin var í útlöndum þegar þau tilkynntu óléttuna. Enok heldur brosandi um maga Birgittu og er parið greinilega spennt fyrir komandi tímum.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar parinu til hamingju.