Óska eftir einstaklingum með köngulóafælni

Hægt er að leggja inn umsókn á heimasíðu Háskóla Íslands.
Hægt er að leggja inn umsókn á heimasíðu Háskóla Íslands. Samsett mynd

Sálfræðiráðgjöf háskólanema við Háskóla Íslands býður nemendum og börnum þeirra upp á sálfræðiþjónustu á vegum meistaranema í sálfræði. Nú í upphafi haustmisseris fer fram þjálfun meistaranema í meðferð við einfaldri fælni, og þá sérstaklega köngulóafælni, og er því óskað sérsaklega eftir nemendum við Háskóla Íslands eða börnum nemenda með köngulóafælni. 

Á vefsíðu háskólans kemur fram að boðið sé upp á einnar lotu meðferð við sértækri fælni sem samanstandi af u.þ.b. 40 mínútna matsviðtali og meðferð sem stendur yfir í 90-180 mínútur í einni lotu. Alls eru 20 laus pláss í meðferðina. 

Fimm einkenni köngulóafælni:

  1. Mikill kvíði eða hræðsla við köngulær
  2. Köngulær vekja oftast samstundis kvíða eða hræðslu
  3. Forðast oftast köngulær
  4. Kvíðinn eða hræðslan er meiri en köngulær gefa tilefni til
  5. Hræðslan hefur verið til staðar í meira en 6 mánuði
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda