Birgitta Líf Björnsdóttir, markaðsstjóri World Class, og Enok Jónsson héldu glæsilega kynjaveislu um helgina. Parið greindi frá kyni barnsins með því að láta þyrlu dreifa bláum reyk. Það er ekki á allra færi að leigja þyrlu fyrir gjörning sem þennan.
Mbl.is kannaði hvað þyrluflug kostar. Klukkutíminn kostar yfirleitt á bilinu 350 til 450 þúsund krónur. Þyrlan sem flaug með bláa reykinn í gær flaug í alls sjö mínútur og þar af var hún í eina mínútu yfir sjónum.
Verkefni sem þessi eru óalgeng á Íslandi en hugmyndin er þekkt erlendis. Hingað til hefur þótt frumlegt á Íslandi að sprengja flugelda í ákveðnum kynjalitum. Hefðbundna leiðin er að baka köku í ákveðnum lit og er sú leið jafnframt nokkuð ódýrari en að leigja þyrlu.