Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Þau eru stofnendur og eigendur staðarins Maka'i þar sem þau selja acai-skálar sem hafa notið mikilla vinsælda bæði hér á landi og erlendis.
Ágúst Freyr og Elísabet Metta deildu gleðifregnunum með sameiginlegri færslu á Instagram með yfirskriftinni: „2024“ og fallegu myndskeiði af óléttukúlunni. Fyrir eiga þau einn son, Viktor Svan, sem kom í heiminn árið 2018.
Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!