Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf, og Sigurður Karlsson framkvæmdastjóri Ilva eignuðust dóttur 7. september.
„Litla fallega stelpan okkar fékk nafnið Sóley Lív Sigurðardóttir þann 13 október, Siggi var líka mjög heppinn og fékk hring, öllum að óvörum,“ segir Lína Móey á Facebook-síðu sinni.
Lína Móey missti eiginmann sinn, John Snorra Sigurjónsson, í febrúar 2021 þegar hann reyndi að komast fyrstur manna á topp fjallsins K2 að vetrarlagi. John Snorri var einn færasti fjallgöngumaður landsins.
Lína Móey og John Snorri eiga tvo syni sem eru fimm og sjö ára gamlir. Auk þess átti hún dóttur fyrir sem er 22 ára gömul. Sigurður á tvö börn af fyrra sambandi, dóttur sem er tvítug og son sem er níu ára.