Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson og viðskiptafræðingurinn María Ósk Skúladóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Sunnevu Sif.
Jón Daði og María tilkynntu gleðifréttirnar í sameiginlegri færslu á Instagram, en með færslunni birtu þau fallega myndaseríu. „Þrjú verða fjögur, apríl 2024.“
Á síðasta ári ræddi María um móðurhlutverkið, meðgönguna og fæðingu dóttur þeirra í einlægu viðtal á fjölskylduvef mbl.is. Meðgangan var ekki sú auðveldasta fyrir Maríu, en hún greindist með hypereeisi gravidarum (HG) sem felur í sér mikla ógleði og uppköst, langt um fram það sem talið er eðlilegt. Hún jafnaði sig þó eftir 20. viku meðgöngunnar.
Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!