Hafdís Guðnadóttir, ljósmóðir og fjögurra barna móðir, fagnaði eins árs afmæli tvíburadætra sinna í gærdag, fimmtudaginn 8. febrúar. Stúlkurnar, Alda og Yrja, sem deila millinafninu Líf, hafa átt viðburðaríkt ár í faðmi foreldra sinna og eldri systkina, en Hafdís birti fallegt myndskeið í tilefni dagsins sem sýndi brot frá þessu fyrsta ári þeirra.
Hafdís stofnaði fyrirtækið Sofa, borða, elska, og aðstoðar fólk við að hjálpa börnum sínum að sofa vel og fleiri uppeldistengt.
„EINS árs elsku hnoðrarnir mínir. Það er búið að vera algjörlega geggjað að fá að fylgja þeim í gegnum fyrsta árið sitt,“ skrifaði Hafdís við myndskeiðið.
Hafdís er gift Guðmundi Geir Jónssyni og eiga hjónin fjögur börn.