Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, fæddi son 8. febrúar. Birgitta greindi frá fæðingu sonarins á Instagram í dag.
Drengurinn litli er fyrsta barn Birgittu Lífar og Enoks Jónssonar. Hann var 17 merkur og 52 cm við fæðingu.
„𝟶𝟾.𝟶𝟸.𝟸𝟺 🤍 ö𝚕𝚕 𝚑𝚎𝚒𝚖𝚜𝚒𝚗𝚜 á𝚜𝚝,“ skrifar Birgitta við myndina af syni sínum, sem er fæddur í vatnsberamerkinu.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!