Edda Falak, fyrrverandi blaðamaður á Heimildinni, og Kristján Helgi Hafliðason, glímukappi og þjálfari í Mjölni, eiga von á sínu fyrsta barni.
Edda greindi frá gleðitíðindunum í færslu á Instagram rétt í þessu.
„Foreldrar. Síðustu ár hef ég eytt tíma mínum og orku í mikilvæg samfélagsmál. Síðustu mánuðir hafa hins vegar farið í að draga úr streitu og hlúa að sjálfri mér, í kjölfarið fékk ég besta hlutverk í heimi, loksins mamma,“ skrifaði Edda við myndaseríu á Instagram sem sýnir óléttukúlu, sónarmyndir og samfellu.
Edda og Kristján Helgi byrjuðu saman snemma árs 2021. Hún staðfesti sambandið í samtali við Smartland.
Fjölskylduvefurinn óskar Eddu og Kristjáni Helga innilega til hamingju!