Davíð Helgason fjárfestir og danska fyrirsætan Isabella Lu Warberg eiga von á sínu öðru barni saman en þau eiga fyrir einn son. Davíð á einnig börn úr fyrra hjónabandi.
„Bíðum eftir vorbarninu okkar,“ skrifar fyrirsætan á Instagram-síðu sína. Hún birtir meðal annars mynd af sér með myndarlega óléttkúlu. Hún er klædd í fallega loðkápu og í Gucci-strigaskó. Verðandi stóri bróðir er með á myndunum.
Davíð og Isabella eiga soninn Ágúst sem kom í heiminn árið 2022. Þau gengu í hjónaband heima hjá sér við Hrólfsskálavör á Seltjarnarnesi um verslunarmannahelgina í fyrra.