Þjálfarahjónin Sandra Björg Helgadóttir og Hilmar Arnarson eiga von á sínu fyrsta barni saman. Þau tilkynntu gleðifregnirnar með sameiginlegri færslu á Instagram.
Sandra Björg og Hilmar kynntust þegar þau voru í námi í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands. Þau gengu svo í hjónaband sumarið 2023 við fallega athöfn á Íslandi, en þau voru þá búsett í Los Angels í Kaliforníu þar sem Sandra stundaði MBA-nám.
Hjónin birtu fallega mynd af sér á ströndinni í Malibu í Kaliforníu þar sem Sandra Björg heldur á sónarmynd. „Draumur að verða að veruleika. Hjartað er stútfullt af þakklæti. Settur dagur 28. september 2024,“ skrifuðu þau við myndina.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar hjónunum innilega til hamingju!