Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin Mcleod eiga von á barni.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Erin Mcleod eiga von á barni. Ljósmynd/Jeremy Reper

Knatt­spyrnu­kon­an Gunn­hild­ur Yrsa Jóns­dótt­ir á von á barni með eig­in­konu sinni, Erin Mc­leod. Knatt­spyrnu­kon­urn­ar hafa báðar leikið með Stjörn­unni. 

„Liðið okk­ar er að stækka,“ skrifuðu hjón­in á In­sta­gram og birtu meðal ann­ars mynd af hund­in­um sín­um og són­ar­mynd. 

Gunn­hild­ur Yrsa opnaði sig meðal ann­ars um hjóna­bandið og knatt­spyrnu­fer­il­inn í viðtali við Sunnu­dags­mogg­ann í fyrra. 

„Ég kynnt­ist henni árið 2019 þegar besta vin­kona mín, sem spil­ar með kanadíska landsliðinu, kom okk­ur sam­an. Erin var þá í Svíþjóð og ég í Utah þannig að það var ótrú­lega langt á milli okk­ar, en allt í einu fékk ég skila­boð frá Erin. Al­veg frá fyrstu kynn­um náðum við svo vel sam­an og hún skellti sér í heim­sókn til mín. Eft­ir það varð ekki aft­ur snúið,“ sagði Gunn­hild­ur meðal ann­ars. 

Fjöl­skyldu­vef­ur mbl.is ósk­ar Gunn­hildi Yrsu og Erin til ham­ingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda