Birgitta Líf Björnsdóttir, nýbökuð móðir, samfélagsmiðlastjarna og markaðsstjóri World Class, lætur ekki líða langt á milli utanlandsferða. Það eru ekki liðnar nema örfáar vikur frá því að hún sleikti sólina á Spáni ásamt sambýlismanni sínum, Enok Jónssyni, og nýfæddum syni parsins, sem þá var rúmlega eins mánaðar gamall.
Birgitta Líf er nú mætt til skosku menningarborgarinnar Glasgow ásamt syni sínum og móður, Hafdísi Jónsdóttur, betur þekkt sem Dísa í World Class.
Þetta er önnur utanlandsferð drengsins eftir að hann kom í heiminn þann 8. febrúar síðastliðinn, en Birgitta Líf var mjög dugleg að ferðast yfir meðgöngutímabilið og heimsótti meðal annars Amalfi-ströndina á Ítalíu, hlýddi á rapparann 50 Cent í Lundúnum, upplifði jólaandann í New York og fór í skvísuferð til Parísar.
Samfélagsmiðlastjarnan birti myndaseríu á Instagram-síðu sinni fyrr í dag sem sýnir mæðginin njóta lífsins á götum Glasgow. Birgitta Líf hefur einnig birt þó nokkur myndskeið í Instagram Story.
„Sætasti fylgihluturinn minn,“ skrifaði hún við færsluna.