Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, matargyðja og upplifunarstjóri Hagkaups, og Haraldur Haraldsson, deildarstjóri Icelandir Cargo, eignuðust dóttur þann 26. maí eða á miðvikudaginn var. Sú litla, sem fengið hefur nafnið Margrét Maren, er þriðja dóttir hjónanna. Margrét Maren er nefnd í höfuðið á konum sem eru þeim kærar greinir Eva Laufey frá á Facebook-síðu sinni.
Eldri dætur hjónanna heita Ingibjörg Rósa og Kristín Rannveig.
„Við sjáum ekki sólina fyrir henni og njótum þess að kúra með henni alla daga enda er ekkert betra í þessum heimi en nákvæmlega þetta,“ segir Eva Laufey í færslu sinni.
Fjölskyldan á mbl.is óskar Evu Laufeyju og Haraldi til hamingju með dóttur númer þrjú!