Knattspyrnumaðurinn Jón Daði Böðvarsson og viðskiptafræðingurinn María Ósk Skúladóttir greindu frá nafni sonar síns um helgina. Sonurinn fékk nafnið Emil Atli.
„Emil Atli Jónsson,“ skrifuðu foreldrarnir við krúttlega mynd af syninum í peysu með nafninu sínu.
Emil Atli er annað barn Jóns Daða og Maríu.
Árið 2022 fór María í einlægt viðtal á fjölskylduvef mbl.is þar sem hún ræddi um móðurhlutverkið, meðgöngu og fæðingu dóttur þeirra sem kom í heiminn árið 2019. Meðgangan var ekki sú auðveldasta fyrir Maríu, en hún greindist með hypereeisi gravidarum (HG) sem felur í sér mikla ógleði og uppköst, langt umfram það sem talið er eðlilegt. Hún jafnaði sig þó eftir 20. viku meðgöngunnar.
Fjölskylduvefur mbl.is óskar drengnum til hamingju með þetta fallega nafn!