Söng- og leikkonan Stefani Joanne Angelina Germanotta, betur þekkt undir listamannsnafni sínu Lady Gaga, er ekki ólétt.
Síðastliðin föstudag héldu nettröll því fram að það glitti í óléttukúlu hjá stórstjörnunni en hún mætti klædd stuttum svörtum kjól í matarboð, en tilefnið var brúðkaup yngri systur hennar, söngkonunnar Natali Germanotta.
Brúðkaupið var haldið í smábænum York í Maine-ríki Bandaríkjanna, en Gaga var brúðarmær og stóð við hlið systur sinnar í athöfninni. Veislugestir voru sannfræðir um að hún væri með óléttukúlu.
„Ekki ólétt,“ skrifaði Gaga í TikTok-myndbandi af sér í líkamsrækt í gær.
„Bara á botninum, grátandi í ræktinni,“ bætti hún við, en um er að ræða tilvitnun í texta lagsins Down Bad á plötu tónlistarkonunnar Taylor Swift, Tortured Poets Department, sem kom út í apríl.
Í myndbandinu skrifaði Gaga textann á svartan stuttermabol og brosti síðan breitt í myndavélina. Hún lætur ekkert ræna sig hamingjunni.