Kærustuparið Jörundur Ragnarsson leikari og Magdalena Björnsdóttir eru orðnir foreldrar en þau eignuðust son 2. maí.
Magdalena fagnaði þrítugsafmæli sínu í gær og er í þann mund að útskrifast úr háskóla með þar sem námið gekk eins og í sögu. Jörundur segir í einlægri færslu á Facebook að hann sé að springa úr stolti yfir sinni heittelskuðu.
„Magdalena á daginn í dag. Ekki aðeins er hún að fagna 30 árum heldur er hún nýbúin að fæða gullfallegan son og er að útskrifast úr háskóla í vikunni með fyrstu einkunn.
Hún er algjör afrekskona, dugleg með eindæmum, umhyggjusöm móðir og stjúpmóðir, dýravinur og besta kærasta sem hægt er að ímynda sér. Þar fyrir utan er hún stórskemmtileg, og fegurri en orð fá lýst.
Ég skil ekki hvað ég hef gert til að eiga hana skilið, en vá, hvað ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst henni. Til hamingju hetja mín! Ég elska þig!“
Parið fann ástina í heimsfaraldrinum en í apríl 2021 birtist frétt um þau á Smartlandi:
Jörund ættu margir að kannast við en hann fór meðal annars með hlutverk Daníels í Næturvaktinni, Dagvaktinni og Fangavaktinni. Þar að auki hefur hann farið með hlutverk í fjölda leikrita og kvikmynda undanfarin ár. Jörundur á einn son úr fyrra sambandi sem fermdist í vor.
Magdalena er dóttir Kolfinnu Baldvinsdóttur, sem er dóttir Jón Baldvins Hannibalssonar og Bryndísar Schram, og tónlistarmannsins Björns Jörundar Friðbjörnssonar.
Fjölskyldan á mbl.is óskar Jörundi og Magdalenu innilega til hamingju með soninn!