Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian eignaðist sitt fjórða barn í fyrra. Hún tók þá ákvörðun að fara ekki út úr húsi 40 dögum eftir fæðinguna.
Stjarnan greindi frá ákvörðun sinni í nýjum þætti af The Kardashians. „Ég ætla að vera heima í 40 daga,“ sagði Kourtney Kardashian systrum sínum Khloé Kardashian og Kim Kardashian. „Ætlar þú að vera heima í 40 daga og 40 nætur?“ spurði þá Khloé Kardashian systur sína hissa að því fram kemur á vef People.
Kardashian tók ákvörðunina til þess að heila líkama sinn eftir meðgöngu og fæðingu. „Í mörgum mismunandi menningarheimum fara konurnar ekki út í 40 daga,“ sagði Kourtney Kardashian og upplýsti hún systur sínar að konur gerðu þetta til þess að heila líkamann.
Sagðist hún jafnframt vera hrifin af uppeldi þar sem mikil nærvera er á milli foreldra og barna. „Ég fer ekki frá honum. Ég elska að vera heima núna, tíminn minn fer í að hugsa um barnið og mynda tengsl við hann,“ sagði Kourtney Kardashian.