Tími fyrir barneignir liðinn

Dita Von Teese er 51 árs.
Dita Von Teese er 51 árs. AFP

Dita Von Teese ætlaði að setjast í helgan stein um þrítugt en er 51 árs í dag og enn á fullu að vinna. Hún er einn þekktasti „burlesque“ listamaðurinn í dag. Í viðtali við The Times ræðir hún um ferilinn og ástarlífið.

„Það er bara magnað að ég hafi náð að gera þetta að starfsferli. Ég átti aldrei von á því. Á fjórða áratugnum voru dansarar búnir að vera um þrítugt. Ég átti því allt eins von á því að vera búin um þrítugt og hafði engin framtíðaráform eftir það og engin markmið,“ segir Von Teese.

Von Teese var eitt sinn gift Marilyn Manson en hjónabandið varði aðeins í eitt ár. Hún sagðist hvorki hafa verið sátt við lífsstíl hans né samband hans við aðra konu. Síðasta áratuginn hefur Von Teese verið í sambandi við grafíska hönnuðinn Adam Rajevich. Hún segir tími barneigna vera liðinn.

„Ég var önnum kafin við að gera eitthvað sem var einstakt. Mér fannst ég verða bara að fylgja flæðinu. Það kom aldrei augnablik sem mér fannst rétti tíminn vera kominn til þess að taka pásu frá starfinu,“ segir Von Teese. Þá var hún kvött áfram af fyrirmynd sinni Mamie Van Doren sem er nú 93 ára. „Van Doren á einn son sem hún elskar en hún lagði samt áherslu á að maður léti ekki glepjast af því sem mæðrahlutverkið krefsts af manni.“

Kannski mun ég dag einn segjast hafa gert stór mistök með því að eignast ekki börn, en ég veit það ekki.“

Von Teese segist þó ákveðin í að giftast aldrei aftur.

„Ég hef aldrei verið sérstaklega lánsöm í ástum. Ég er ekki beinlínis uppskrift af heilbrigðum samböndum til lengri tíma litið. Ég man í brúðkaupinu mínu þá hugsaði ég hversu mikið leikrit þetta væri. Ég skil að fólk vilji eiga daginn sinn og klæðast fallegum kjól en ég fæ að gera það hvort eð er alla daga uppi á sviði.“

Dita Von Teese er einn frægasti burlesque dansari okkar tíma …
Dita Von Teese er einn frægasti burlesque dansari okkar tíma og er hvergi nærri hætt. Ljósmynd/Dita Von Teese
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda