Gypsy Rose Blanchard, sem hlaut tíu ára fangelsisdóm fyrir að myrða móður sína árið 2015, á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Ken Urker. Þau tilkynntu óléttuna á samfélagsmiðlinum YouTube í byrjun júlí, en nú hafa þau opinberað kyn barnsins.
Parið tilkynnti kynið í einlægu myndbandi á Instagram í gær, en þau eiga von á lítilli stúlku. Blanchard og Urker eru afar lukkuleg í myndbandinu, en við færsluna skrifaði Blanchard stuttan texta þar sem hún sagði þau vera í skýjunum og afar spennt fyrir því að stofna sína eigin fjölskyldu. Þá þakkaði hún einnig fjölskyldu sinni og vinum fyrir allan stuðninginn sem þau hafa fengið.
Ástarlíf Blanchard hefur verið flókið í gegnum tíðina en fyrr á þessu ári tilkynnti hún skilnað hennar frá Ryan S. Anderson. Stuttu síðar var svo greint frá því í fjölmiðlum að Blanchard væri aftur komin í ástarsamband með fyrrverandi unnusta sínum, Urker.
Nú virðist sem Blanchard sé komin á beinu brautina með sínum heittelskaða en líf hennar var lengi afar stormasamt.
Blanchard losnaði úr fangelsi þann 28. desember síðastliðinn eftir að hafa setið inni í átta ár. Morðið vakti mikla athygli í fjölmiðlum í Bandaríkjunum þar sem móðir Blanchard er sögð hafa logið upp á dóttur sína svo árum skiptir og sagði hana þjást af fjölmörgum kvillum t.d. hvítblæði og flogaveiki.