Mandy Moore fæddi stúlkubarn

Mandy Moore er orðin þriggja barna móðir.
Mandy Moore er orðin þriggja barna móðir. AFP

Leik- og söngkonan Mandy Moore og eiginmaður hennar, tónlistarmaðurinn Taylor Goldsmith, hafa eignast sitt þriðja barn saman. Þeim fæddist stúlka og hefur hún fengið nafnið Louise Everett eða Lou eins og þau kalla hana. 

Hjónin tilkynntu um fæðingu og nafngift stúlkunnar í sameiginlegri færslu á Instagram í gærdag. 

„Lou er mætt! Louise Everett Goldsmith kom í heiminn sæl, hraust og á réttum tíma fyrir tímabil meyjunnar. Hún er draumastúlkan okkar og eldri bræður hennar eru nú þegar helteknir af henni líkt og við,“ skrifuðu hjónin meðal annars við færsluna. 

Moore og Goldsmith eiga einnig synina August „Gus“ Harrison og Oscar „Ozzie“ Bennett.

View this post on Instagram

A post shared by Mandy Moore (@mandymooremm)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál