Megan Fox á von á barni eftir fósturmissi

Megan Fox á von á barni.
Megan Fox á von á barni. Ljósmynd/AFP

Bandaríska leikkonan Megan Fox á von á sínu fjórða barni og því fyrsta með sambýlismanni sínum, tónlistarmanninum Colson Baker, best þekktur undir listamannsnafninu Machine Gun Kelly.

Fox tilkynnti gleðitíðindin á Instagram-síðu sinni í gærdag, tæpu hálfu ári eftir að hún greindi frá fósturmissi, en með færslunni birti hún tvær ljósmyndir, eina sem sýnir stækkandi óléttukúlu og aðra sem sýnir jákvætt þungunarpróf.

„Ekkert er í raun og veru glatað. Velkominn aftur,“ skrifaði Fox við færsluna.

Parið, sem hefur verið í „haltu mér slepptu mér“ sambandi frá árinu 2020, sleit trúlofun sinni fyrr á þessu ári án þess þó að hætta saman.

Fox var áður gift leik­ar­an­um Bri­an Aust­in Green, sem marg­ir þekkja úr sjón­varpsþáttaröðinni Bever­ly Hills 90210, og á með honum þrjá syni. Baker á eina dóttur úr fyrra sambandi.

View this post on Instagram

A post shared by Megan Fox (@meganfox)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda