Stjörnurnar í Bandaríkjunum skörtuðu sínu fegursta á rauða dreglinum, sem var að vísu svartur á litinn, í gærkvöld, þegar hin árlegu Governors-verðlaun voru veitt við hátíðlega athöfn í Los Angeles.
Leikkonan Angelina Jolie, sem þykir líkleg til að hreppa Óskarsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Maria, vakti mikla athygli á rauða dreglinum. Hún mætti ásamt yngsta syni sínum, hinum 16 ára gamla Knox Léon Jolie-Pitt.
Drengurinn var afar glæsilegur við hlið móður sinnar, klæddur svörtum klassískum smóking. Jolie, sem stígur sjaldan feilspor þegar kemur að kjólavali, var gullfalleg í gylltum síðkjól sem hún fann í „vintage“-verslun.
Leikkonan Jennifer Lawrence vakti einnig mikla athygli á rauða dreglinum. Hún sýndi stækkandi óléttukúlu sína í súkkulaðibrúnum kjól frá tískuhúsinu Bottega. Lawrence á von á sínu öðru barni snemma á næsta ári.
Stjörnur á borð við Jennifer Lopez, Demi Moore, Kristen Wiig, Anna Kendrick og Rebel Wilson létu sig ekki vanta á rauða dregilinn.