Barn Ryan og Tönju Ýrar komið í heiminn

Ryan Amor og Tanja Ýr Ástþórsdóttir.
Ryan Amor og Tanja Ýr Ástþórsdóttir. Ljósmynd/Instagram

Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og samfélagsmiðlastjarna, og kærasti hennar, Ryan Amor, hermaður í breska hernum, eignuðust sitt fyrsta barn saman á dögunum. Barnið, sem er drengur, kom í heiminn þann 23. janúar síðastliðinn.

Parið greindi frá óléttunni síðla júlímánaðar í fyrra, örfáum mánuðum áður en það fagnaði þriggja ára sambandsafmæli sínu.

Tanja Ýr deildi færslu á Instagram-síðu sinni þann 19. janúar þar sem hún sagði meðgönguna eina mögnuðustu tilfinningu sem hún hafi upplifað.

„Hafa fengið að ganga með hann og átt bestu mögulegu meðgöngu sem ég hefði getað óskað mér hefur verið ein magnaðasta tilfinning sem ég hef upplifað.

Líkaminn er magnaður og ég er ekkert smá þakklát fyrir síðustu 9 mánuði saman. Við erum svo spennt að hitta þig,“ skrifaði hún við fallegt myndband af Ryan að strjúka óléttukúluna.

Smartland óskar parinu hjartanlega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by T A N J A Ý R (@tanjayra)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda